Kvenfélag Garðabæjar

Borði
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Home Um félagið Lög félagsins

Lög félagsins

Lög og reglur Kvenfélags Garðabæjar.

1.grein 

Félagið heitir Kvenfélag Garðabæjar. Heimili þess og varnarþing er í Garðabæ. Félagssvæðið er Garðabær. Félagið er í Kvenfélagasambandi Gullbringu og Kjósarsýslu og því aðili að Kvenfélagasambandi Íslands og Húsmæðrasambandi Norðurlanda. 

2. grein 
  
Tilgangur félagsins er: 
1. að efla félagslegt starf meðal kvenna í Garðabæ. 
2. að vinna að stefnuskrármálum Kvenfélagasambands Íslands,
    sbr. lög K.Í. 3. grein 1.-5.lið. 
3. að vinna að hagsmuna- og réttindamálum kvenna í hvers konar 
    starfi, er horfir til framfara og aukinnar menningar. 
  
3. grein 
  
Tilgangi sínum hyggst félagið ná: 
1. með fræðslu og skemmtisamkomum fyrir félagskonur og gesti þeirra. 
2. með því að efna til fyrirlestra og námskeiða, einkum í hvers konar 
    fræðum,  er lúta að búsýslu og heimilisstörfum. 
3. með því að ræða á fundum sínum þau mál, er félagskonur
    telja félagið varða og því beri að beita sér fyrir. 
  
4. grein 
  
Rétt til inngöngu í félagið eiga allar konur, 16 ára og eldri, sem búsettar eru í Garðabæ. Heimilt er að stofna ungmeyjadeild innan félagsins. Inntökubeiðni skal bera fram á félagsfundi. Á aðalfundi fer inntaka nýrra félaga þó aðeins fram eftir stjórnarkosningu. 
  
5. grein 
  
Stjórn félagsins skipa fimm konur. Formaður er kosinn sérstakri kosningu. Hinar stjórnarkonurnar eru kosnar án verkaskiptingar. Stjórnin er kosin  til tveggja ára,  þó þannig, að annað árið gengur formaður og tvær konur úr stjórninni, en hitt árið tvær stjórnarkonur. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og skal  ein þeirra vera varaformaður. Hafi kona setið fjögur ár eða lengur og biðst undan endurkosningu, skal sú beiðni hennar tekin til greina um jafnlangt árabil.  Varastjórn skipa fjórar konur og skulu þær allar kosnar árlega sérstakri  kosningu og taka sæti í aðalstjórn eftir atkvæðatölu. 
Kosning stjórnar og varastjórnar skal vera bundin og leynileg og fara fram  á aðalfundi ár hvert. Þá skulu og kosnir tveir skoðunarmenn reikninga félagsins. 
  
6. grein 
  
Formaður boðar til funda og setur þá. Hann ýmist stjórnar þeim sjálfur eða skipar fundarstjóra. Ennfremur er formaður málsvari félagsins út á við og ávísar reikningum til greiðslu. Gjaldkeri innheimtir tekjur félagsins, greiðir  reikninga þess að tilvísun formanns og færir bók, er sýnir glöggt  yfirlit yfir tekjur, gjöld og eignir félagsins. Gjaldkeri sér um varðveislu á sjóðum félagsins og ber ábyrgð á þeim, nema öðruvísi sé ákveðið með sérstökum reglum. Ritari bókar fundargerðir og annast önnur ritstörf félagsins, sem formaður kann að fela honum. 
  
7. grein 
  
Félagsgjald greiðist fyrir 1. nóv ár hvert. Þær félagskonur einar, sem gert hafa full skil á félagsgjöldum sínum, teljast fullgildir félagar og hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.  Þær konur, sem ekki greiða árgjöld sín til félagsins í tvö ár í röð,  þótt þær hafi verið minntar á það, má strika út af félagaskrá.  Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og send stjórninni.  Reikningsárið er almanaksárið. 
  
8. grein 
  
Aðalfundur félagsins skal haldinn í febrúarmánuði ár hvert og skal boða til hans bréflega með minnst tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef  löglega er til hans boðað. Á aðalfundi skal kosið í stjórn, lögð fram ársskýrsla  félagsins og skoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar. 
  
9. grein 
  
Komi til mála að félagið verði leyst upp, getur það aðeins farið fram með þeim hætti,  að haldinn verði sérstakur fundur, sem til er boðað með mánaðar fyrirvara og einungis er haldinn, til þess að ræða ákvörðun um upplausn félagsins.  Til þess að gerðir slíks fundar verði lögmætar, þurfa að sækja hann a.m.k.  2/3 fullgildra félagskvenna, en 2/3 fundarkvenna þurfa að greiða atkvæði  með félagsslitum, til þess að upplausnin sé lögmæt. Náist eigi saman á fund þennan tilskilinn hluti félagskvenna, skal boða til annars fundar með viku fyrirvara.  Á þeim fundi ræður einfaldur meirihluti úrslitum, enda séu gerðir þess fundar  lögmætar þótt enginn ákveðinn hluti félagskvenna sæki hann. 
  
10. grein 
  
Leysist félagið upp, renna skuldlausar eignir þess til líknar- eða menningarmála í bænum. Ráðstafa skal eignum félagsins í samráði við bæjarstjórn, sóknarprest, héraðslækni og formann skólanefndar 
  
11. grein 
  
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og skulu breytingartillögur hljóta 3/4 atkvæða fundarkvenna og hafa verið ræddar á a.m.k. einum félagsfundi áður. 
  
Lög K.Í., 3. grein, sem vitnað er í: 

Tilgangur sambandsins er: 
1. að veita aðalforgöngu í starfandi félagsskap kvenna til 
    eflingar húsmæðrafræðslu, heimilisiðnaði og garðyrkju með
    hvatningu, fjárstyrk og eftirliti. 
2. að stuðla í hvívetna að uppeldis-, fræðslu- og menningarmálum. 
3. að vera á verði um hag íslenskra heimila 
4. að stuðla eftir megni að hverju því, sem létt getur störf húsfreyjunnar og 
    bætt aðstöðu hennar 
5. að stuðla og beita sér fyrir því, er stutt getur að haghvæmri og
    hollri hagnýtingu fæðutegunda einkum innlendra.
 

Á döfinni

No events

Viðburðadagatal

« < Maí 2012 > »
S M Þ M F F L
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2
« < Júní 2012 > »
S M Þ M F F L
27 28 29 30 31 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Kvenfélag Garðabæjar
Pósthólf 47
212 Garðabær
Kt. 700169-7319