Næsti félagsfundur verður á Garðaholti þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20:00. Í kaffinefnd eru hverfi 2, 3, 16, 18 og 21. Fundurinn er að þessu sinni gestafundur og er von á hressum konum úr kvenfélaginu Gefn í Garði. Skemmtinefnd skipa Oddný Þóra Helgadóttir og Stella Kiernan og lofa þær skemmtilegri dagskrá, m.a. ætlar Sigrún Gísladóttir fv. skólastjóri að kynna okkur bók sína; Kaupmannahöfn - í máli og myndum. Þá mun Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir veita viðtöku gjafabréfi frá félaginu en eins og fram hefur komið var ákveðið veita söfnunarfénu frá kvennakvöldinu til Forvarna- og fræðslusjóðs ÞÚ GETUR!
Félagskonur! mætum á Holtið og höfum gaman saman.






