Fyrsti félagsfundur vetrarins var á Garðaholti 4. okt. sl. og var hann að venju matarfundur. Fundurinn var í umsjón stjórnar og voru gestir fundarins Guðni Ágústsson og frú Margrét Hauksdóttir en þau eru nýflutt í bæinn. Sló Guðni á létta strengi við góðar undirtektir kvennanna í salnum sem hlógu dátt að sögum og ekki síst af spaugilegum atvikum sem hann rataði sjálfur í á ferli sínum sem alþingismaður og ráðherra. Þá var vorferð félagsins rifjuð upp í máli og myndum auk þess sem dekurnefndin kynnti konukvöldið sem verður föstudaginn 14. október nk. á Garðaholti. Að þessu sinni gengu 5 konur í félagið og er það fagnaðarefni.
Myndir væntarlegar í myndasafnið






