Síðasti félagsfundur vetrarins verður að Garðaholti þriðjudaginn 3. maí og hefst
kl. 19:30. Að venju er matarfundur og boðið upp á spennandi matseðil:
-Lystauki-
Ferskur lax ‚Asian Style‘
tónaður sítrónugrasi, sesam & fersku kóríander
Kryddjurtahjúpaður lambahryggvöðvi
ásamt mildri hvítlauks-kartöflumús, villisveppa'ragout'
& dökkum Madeiragljáa
Heit súkkulaðikaka
með heimalöguðum vanilluís, hindberjum
& sykurristuðum möndlum
Skemmtinefnd er skipuð þeim Guðrúnu Sverrisdóttur og Ólöfu Ingþórsdóttur.
Hvetjum konur til að setja upp höfuðföt þetta kvöld og setja þannig svip sinn á samkomuna.






