Kæru félagskonur.
Viljum minna ykkur á næstsíðasta fund vetrarins sem verður þriðjudaginn 6. apríl n.k. Við byrjum fundinn að venju kl. 20:00. Í skemmtinefnd eru Ásta Thoroddsen og Sigurlaug Sverrisdóttir. Þær hafa fengið til liðs við sig Dagmar Sigurðardóttur.
Dagskráin er blanda af gamni og alvöru: Auk heimatilbúinna atriða hefur nefndin fengið Hjálparsamtökin Enza til að vera með kynningu á starfsemi sinni í fátækrahverfi skammt frá Höfðaborg í Suður-Afríku. Þar er hópur kvenna sem engin önnur hjálparsamtök styðja sérstaklega. Enza eru íslensk hjálparsamtök stofnuð af sjö íslenskum konum, þar af þremur úr Garðabæ.
Bleiki liturinn verður allsráðandi þetta kvöld, enda veitir ekki af eftir sorta vetrarins að fá smá birtu í sálina. Það væri gaman ef þið gætuð skartað einhverju bleiku þó ekki væri nema nælu eða slæðu.
Í kaffinefnd eru hverfi 7, 8 og 9.
Mætum nú allar á Garðaholtið til að kæta geðið og næra magakrílið.
Stjórnin






