Kvenfélag Garðabæjar

Borði
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Home Fréttir Liðnir viðburðir

Líður að jólum ..

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Senn líður að næsta félagsfundi sem er jólafundurinn okkar en hann verður að Garðaholti þriðjudaginn 6. desember kl. 20:00.
Á fundinn fáum við góða gesti sem kannski eiga það sameiginlegt að geta fengið okkur til að brosa, þó ekki væri nema út í annað Undecided - Gunnar Einarsson bæjarstjóri ætlar að segja okkur frá því sem er efst á baugi í málefnum bæjarins. Þá mun sr. Jóna Hrönn Bolladóttir lesa upp úr bók sinni og sr. Bjarna Karlssonar „ Af heilum hug“ en í bókinni segja þau frá sjálfum sér og lífsskoðunum sínum. Að síðustu munu þau Stefán Helgi Stefánsson tenór og Margrét Sesselja Magnúsdóttir kynna fyrir okkur áhugavert verkefni, en þau hafa að undanförnu heimsótt heimili heilabilaðaðra þar sem Stefán hefur sungið sig inn í hug og hjörtu áheyrenda.
Í kaffinefnd eru hverfi 7, 8, 9, 13 og 14.
Kæru félagskonur ! Tími aðventunnar er runninn upp. Gefum okkur tíma í amstri dagsins til þess að eiga saman góða stund á Holtinu.

Minnum á að Fundasölunefnd verður með söluvörur á fundinum.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 30. Nóvember 2011 14:13
 

Félagsfundur 1. nóvember 2011

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Næsti félagsfundur verður á Garðaholti þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20:00.  Í kaffinefnd eru hverfi 2, 3, 16, 18 og 21. Fundurinn er að þessu sinni gestafundur og er von á hressum konum úr kvenfélaginu Gefn í Garði. Skemmtinefnd skipa Oddný Þóra Helgadóttir og Stella Kiernan og lofa þær skemmtilegri dagskrá, m.a. ætlar Sigrún Gísladóttir fv. skólastjóri að kynna okkur bók sína; Kaupmannahöfn - í máli og myndum. Þá mun Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir veita viðtöku gjafabréfi frá félaginu en eins og fram hefur komið var ákveðið veita söfnunarfénu frá kvennakvöldinu til Forvarna- og fræðslusjóðs ÞÚ GETUR!

Félagskonur! mætum á Holtið og höfum gaman saman.     

Síðast uppfært: Mánudagur, 21. Nóvember 2011 22:47
 

Styttist í Konukvöldið ....

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Velkomin á konukvöld 

Konukvöld Kvenfélags Garðabæjar verður
haldið að Garðaholti

föstudaginn 14. október 2011.

Húsið verður opnað kl. 19.00

Dagskrá hefst kl. 19.30

Um leið og konur skemmta sér í hópi annarra kvenna verður boðið upp á
 spennandi tískusýningar.

Íslenskir hönnuðir og þjónustuaðilar kynntir.

Glæsilegar veitingar, tónlist og happdrætti.

     
Miðaverð er kr 2.000 og gildir miðinn sem happdrættismiði.
Allar konur velkomnar meðan húsrúm leyfir.

Allur ágóði rennur í styrktarsjóð Þú getur“ en sjóðurinn styrkir til náms, þá er átt glímt hafa við geðsjúkdóma, ásamt því að vinna gegn fordómum í garð geðsjúkra.

                        

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. Október 2011 10:59
 

Vetrarstarfið hafið

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Fyrsti félagsfundur vetrarins var á Garðaholti 4. okt. sl. og var hann að venju matarfundur. Fundurinn var í umsjón stjórnar og voru gestir fundarins Guðni Ágústsson og frú Margrét Hauksdóttir en þau eru nýflutt í bæinn. Sló Guðni á létta strengi við góðar undirtektir kvennanna í salnum sem hlógu dátt að sögum og ekki síst af spaugilegum atvikum sem hann rataði sjálfur í á ferli sínum sem alþingismaður og ráðherra. Þá var vorferð félagsins rifjuð upp í máli og myndum auk þess sem dekurnefndin kynnti konukvöldið sem verður föstudaginn 14. október nk. á Garðaholti. Að þessu sinni gengu 5 konur í félagið og er það fagnaðarefni.  

Myndir væntarlegar í myndasafnið

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 10. Október 2011 20:55
 

Félagsfundur 3. maí 2011

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Síðasti félagsfundur vetrarins verður að Garðaholti þriðjudaginn 3. maí og hefst
kl. 19:30. Að venju er matarfundur og boðið upp á spennandi matseðil:


-Lystauki-
Ferskur lax ‚Asian Style‘
tónaður sítrónugrasi, sesam & fersku kóríander

Kryddjurtahjúpaður lambahryggvöðvi
ásamt mildri hvítlauks-kartöflumús, villisveppa'ragout'
& dökkum Madeiragljáa

Heit súkkulaðikaka
með heimalöguðum vanilluís, hindberjum
& sykurristuðum möndlum


Skemmtinefnd er skipuð þeim Guðrúnu Sverrisdóttur og Ólöfu Ingþórsdóttur.
Hvetjum konur til að setja upp höfuðföt þetta kvöld og setja þannig svip sinn á samkomuna.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. Maí 2011 10:15
 


Síða 1 af 5

Á döfinni

No events

Viðburðadagatal

« < Maí 2012 > »
S M Þ M F F L
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2
« < Júní 2012 > »
S M Þ M F F L
27 28 29 30 31 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30