Aðventumessa verður í Garðakirkju sunnudaginn 27. nóvember nk. kl. 14:00. Að venju taka félagskonur þátt í messugjörðinni. Millý Svavarsdóttir og Helga Friðriksdóttir fara með ritningarorð og ræðumaður verður Nanna Helgadóttir. Þá mun formaður tendra ljós spádómskertisins á aðventukransinum.
Félagskonur eru hvattar til þess að mæta til kirkju og njóta stundarinnar við við upphaf jólaföstu.






