Kvenfélag Garðabæjar

Borði
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Home Fréttir Nýjustu fréttir Fjölmennt og góðmennt á Garðaholti

Fjölmennt og góðmennt á Garðaholti

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Á félagsfundi 1. nóvember sl. var fjölmenni á Garðaholti, rúmlega 100 glæsikvendi í salnum og þar að auki einn karlmaður. Félagskonur úr Kvenfélaginu Gefn í Garði sóttu okkur heim og má segja að fundurinn hafi í senn verið skemmtilegur og ekki síður ánægjulegur því formaður, Jóna Rún, afhenti Ólafi Þór Ævarssyni geðlækni, stofnanda Fræðslu- og forvarnarsjóðs „Þú getur“ myndarlegan fjárstyrk frá félaginu en sjóðurinn styrkir, eins og komið hefur fram, m.a. þá til náms sem átt hafa við geðræn veikindi að stríða. Ólafur Þór sagði frá tilurð sjóðsins og þeim árangri sem ná má með því að styðja einstaklinga til náms og þar með aukinna lífsgæða. 
Skemmtinefnd kvöldsins skipuðu þær Oddný Þóra Helgadóttir og Stella Kiernan og fengu þær konur úr báðum félögum til að keppa í leikjum og gott ef okkar konur sigruðu ekki ... nei smá grín :-).
Þá kynnti Sigrún Gísladóttir fyrrverandi skólastjóri og bæjarfulltrúi bók sína "Kaupmannahöfn í máli og myndum" á líflegan hátt - í máli og myndum.
Það er ánægjulegt að segja frá því að bekkirnir sem félagið gaf í Garðakirkjugarð fyrir nokkrum árum hafa nú fengið andlitslyftingu. Þá er og búið að hengja upp nýtt skilti, í stað þess gamla, í gróðurreitinn okkar í Smalaholti.
Það er einnig gleðiefni þegar nýjar konur ganga til liðs við félagið en tvær konur óskuðu inngöngu á fundinum.

Nýjar myndir eru væntanlegar í myndasafnið.

Síðast uppfært: Mánudagur, 21. Nóvember 2011 09:57  

Á döfinni

þri mar 06 @08:00eh - 10:00eh
Félagsfundur - vinkonufundur
þri apr 03 @08:00eh - 10:00eh
Félagsfundur

Viðburðadagatal

« < Febrúar 2012 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3
« < Mars 2012 > »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31