Kæru félagskonur.
Eins og fram kom á síðasta félagsfundi barst okkur bréf frá Beinvernd sem fer þess á leit að við tökum þátt í að minna á mikilvægi beinverndar. Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu. Þess má geta að Kvenfélagasamband Íslands var einn af stofnaðilum samtakanna.
Alþjóðlegur dagur Beinverndar er 20. október ár hvert og verður þess minnst laugardaginn 22. október næstkomandi með því að aðildarfélög Beinverndar standa fyrir hópgöngu víðvegar um land.
Stjórn kvenfélagsins hefur ákveðið að taka þátt í þessu verkefni og hvetur félagskonur til að fjölmenna. Ganga á í kringum Vífilsstaðavatn laugardaginn 22. október, eins og áður hefur komið fram, og hefst hún kl. 2.06 eftir hádegi en tímasetningin á að minna okkur á að í mannslíkamanum eru 206 bein.
Mæting er kl.13:45 við pallinn, vestanvert við vatnið,
Vona ég að félagskonur taki daginn frá og mæti með vini og vandamenn því gangan er ætluð öllum.
Að göngu lokinni verður tekin mynd af hópnum sem birt verður á heimasíðu Beinverndar og auk þess send til alþjóða beinverndarsamtakanna IOF.
Vonast til að sjá ykkur sem flestar.
Kveðja,
Jóna Rún formaður.






