Senn líður að fyrsta fundi vetrarins en hann verður á Garðaholti þriðjudaginn 4. október n.k. kl. 19:30. Gestir fundarins verða Guðni Ágústsson fv. ráðherra og frú en eins og margir vita eru þau nýflutt í bæinn. Væntum við þess að konur eigi góða og glaða stund á Holtinu og ekki spillir matseðillinn kvöldsins fyrir en hann hljóðar svo:
Aðalréttur: Grillað nautafille með rótargrænmeti, fersku salati og rjómasveppasósu.
Eftirréttur: Panna Cotta með mangó, ástaraldini og biscotti.
Verðið er kr. 3.500. - Skrá þarf þátttöku hjá einhverri neðangreindra í síðasta lagi sunnudagskvöldið 2. október. Einnig má leggja inn á reikning félagsins 0318-26-11124 kt. 700169-7319 og jafngildir það þá skráningu. Muna þarf að setja kennitölu greiðanda í skýringu.
Jóna Rún Gunnarsdóttir s. 565-7657 / 694-1024
Auður Guðmundsdóttir s. 571-2654 / 860-4041
Anna Þórðardóttir s. 565-8443 / 899-1287
Konukvöldið 14. október er önnur stærsta fjáröflun félagsins og er undirbúningur þegar hafinn. Að þessu sinni mun allur ágóði renna til styrktarsjóðs „ Þú getur“ en sjóðurinn styrkir þá til náms sem glímt hafa við geðsjúkdóma, ásamt því að uppræta fordóma í garð geðsjúkra.
Ný útgáfa af félagatalinu hefur verið send út. Hvetjum við konur til þess að kynna sér kaffi- og skemmtinefndir vetrarins og láta stjórn vita sjái þær sér ekki fært að taka þátt í þeim nefndum sem þær hafa verið skipaðar í.
Það er von stjórnar að konur taki virkan þátt í starfinu sem framundan er því þannig gerum við félagið okkar enn öflugra.






