
Það er orðinn fastur liður í hátíðarhöldunum vegna 17. júní hjá mörgum fjölskyldum í bænum að koma í kaffi hjá Kvenfélagi Garðabæjar í Flataskóla. Í ár var engin undantekning á því og mættu í kaffisöluna yfir 600 manns og gæddu sér á öllu því góðgæti sem þar var boðið upp á. Félagskonur leggja sitt af mörkum til að taka sem veglegast á móti gestum sínum sem fer fjölgandi með hverju árinu. Fjallkonan í ár var Margrét Kjærnested og blómastúlkan Unnur María Davíðsdóttir 6 ára. Kaffisalan 17. júní er stærsta fjáröflun félagsins og rennur allur ágóði til líknarmála. Kvenfélagið vill hér með koma á framfæri þakklæti til bæjarbúa fyrir stuðninginn og góða þátttöku og vonast til að sjá sem flesta að ári.