Dagurinn okkar nálgast – 17. júní
Tekið verður á móti kaffimeðlæti í Flataskóla frá kl. 11:00 að morgni 17. júní. Þær konur sem hugsanlega verða fjarverandi eru beðnar um að koma meðlætinu til 17. júní nefndar, stjórnarkvenna eða vinkvenna í félaginu. Vinsamlegast munið eftir að merkja alla diska með nafni og símanúmeri.
Margar hendur vinna létt verk þannig að ef þú ert með lausan tíma í undirbúning, frágang eða á mesta álagstímanum frá kl. 14:00 – 17:00 þá endilega hafðu samband við Gunnhildi Lýðsdóttur í síma 864-7458 til að skrá þig á þann tíma sem hentar þér og þinni vinkonu t.d.
Forsala að kaffihlaðborðinu hefst kl. 13:00 í Flataskóla.
Setjum nú á okkur svunturnar og mætum til leiks í Flataskóla 17. júní. Þar mun glaðværðin ríkja og hinn góði kvenfélagsandi svífa léttilega yfir okkar samheldna hópi.
Með hátíðarkveðju
17. júní nefndin og stjórn Kvenfélags Garðabæjar






