Kvenfélag Garðabæjar

Borði
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Home Fréttir Nýjustu fréttir Bréf til félagskvenna - apríl 2010

Bréf til félagskvenna - apríl 2010

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Vorfundur Kvenfélags Garðabæjar

Kæra félagskona.

Við óskum þér gleðilegs sumars með kærri þökk fyrir vetrarstarfið.
Senn líður að síðasta félagsfundi vetrarins en hann verður haldinn að
Garðaholti þriðjudaginn 4. maí og hefst kl. 19:30.  Samkvæmt venju er þetta
matarfundur og boðið upp á girnilegan matseðil:


     Forréttur:      Hreindýrapate með bláberjagljáa, blönduðu salati,
                          ristuðum furuhnetum og léttþeyttum piparrótarrjóma
     Aðalréttur:    Kryddhjúpaðar kjúklingabringur með kjúklingalifrarterrine,
                          eplasalati, julienne grænmeti, ristuðum kartöflum og soðgljáa
     Eftirréttur:    Létt desertsmakk með kaffinu í boði matreiðslumanna    

Verð fyrir matinn er kr. 3.300. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síðasta lagi
sunnudaginn 2. maí til einhverra neðangreindra eða leggið inn á reikning
félagsins hjá Arion banka: 0318-26-11124, kt.: 700169-7319.  Munið að setja
kennitölu greiðanda í skýringu.


    Helga Kristjánsdóttir         gsm. 865 5360
    Auður Guðmundsdóttir     gsm. 860 4041
    Gunnhildur Lýðsdóttir       gsm. 864 7458

Skemmtinefndin er skipuð þeim Maríu Gunnarsdóttur, Milly Svavarsdóttur og
Ólöfu Svavarsdóttur.  Litur fundarins er sumargrænn.

Gönguferð KSGK

Mánudaginn 10. maí er gönguferð í Garðinum á vegum KSGK. Verður hún
auglýst nánar á vorfundinum.  

Vorferð - ,,Sól í hjarta”
Vorferð Kvenfélags Garðabæjar verður farin 15. maí n.k. Farið verður frá
Tónlistarskólanum í Garðabæ stundvíslega kl. 10:00 þann dag og er
heimkoma áætluð um kl. 23:00. Verð fyrir ferðina er kr. 9.000. Innifalið í verði
er hádegismatur, kaffi, kvöldverður og fararstjórn og svo ekki sé nú talað um
allt hitt.  Félagskonur eru vinsamlegast beðnar að greiða staðfestingargjald kr.
4.000 inn á banka: 111-05-0269036, kt.: 271156-3249.  Fatnaður fer eftir veðri
og skór miðist við að farið sé í stutta gönguferð.  Að lokum eru konur minntar
á að taka með sér sunddótið! Nánari upplýsingar veita Jóna Rún Gunnarsdóttir,gsm. 6941024 og Ágústa Magnúsdóttir, gsm. 6606062.


Sumarkveðjur
stjórn Kvenfélags Garðabæjar                    

Síðast uppfært: Föstudagur, 30. Apríl 2010 11:09  

Á döfinni

þri mar 06 @08:00eh - 10:00eh
Félagsfundur - vinkonufundur
þri apr 03 @08:00eh - 10:00eh
Félagsfundur

Viðburðadagatal

« < Febrúar 2012 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3
« < Mars 2012 > »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31