57. aðalfundur kvenfélagsins var haldinn þriðjudaginn 2. febrúar sl. að Garðaholti. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Fundarstjóri var Dagmar Elín Sigurðardóttir. Engin breyting er á stjórninni og situr hún því óbreytt áfram.
Áslaug Olsen, sálfræðingur, flutti fræðandi og uppbyggilegt erindi um hamingjuna sem byggt var á samnefndri bók sem kom út fyrir síðustu jól.
Á fundinum var boðið upp á súpu og brauð og í desert súkkulaðitertu og kaffi. 68 konur mættu á fundinn.
Gaman er að geta þess að fram kom í máli Oddnýar Þóru Helgadóttur, húfumeistara K.S.G.K., að konur í Kvenfélagi Garðabæjar eru búnar að prjóna og gefa 220 ungbarnahúfur til samstarfsverkefnis K.Í. og Ljósmæðrafélags Íslands. Eru konur hvattar til að halda áfram að vinna að þessu ljúfa verkefni yfir árið 2010. Félagið hefur ákveðið að bjóða þeim konum sem eru að prjóna húfurnar garn þeim að kostnaðarlausu. Hægt er að nálgast það hjá Svövu Gústavsdóttur, s. 895-7811.
Næsta hannyrðakvöld verður haldið að Garðaholti þriðjudaginn 23. febrúar n.k. og hefst það kl. 20:00.






