Minnum félagskonur á aðalfund Kvenfélags Garðabæjar sem verður haldinn 2. febrúar n.k. að Garðaholti og hefst stundvíslega kl. 19:30.
Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundastörf. Kosið verður um fjórar konur í varastjórn til eins árs og eina konu í aðalstjórn til tveggja ára.
Boðið verður upp á súpu og brauð á fundinum. Eftir matinn tekur skemmtinefndin við en hana skipar stjórnin að þessu sinni. Í kaffi/súpunefnd eru hverfi 10 og 11.
Hvetjum félagskonur til að fjölmenna á fundinn.
Stjórnin






