Þorrablót kvenfélagsins var haldið að nýju laugardaginn 23. janúar 2010 að Garðaholti eftir tveggja ára hlé. Greinilegt var að bæjarbúar tóku þessu framtaki fagnandi því uppselt varð á mettíma. Gleðigjafarnir Addi og Nonni frá Dalvík fóru á kostum í veislustjórn og
skemmtiatriðum við mikla hrifningu gesta. Minni kvenna var flutt af Sigurði Rúnari Jónmundssyni og minni karla flutti Dagmar Elín Sigurðardóttir. Maturinn frá Múlakaffi,
sem borinn var fram í trogum, rann ljúflega niður hjá veislugestum. Síðan dunaði dansinn langt fram eftir kvöldi. Má með sanni segja að félagskonur og makar þeirra hafi kunnað vel að meta að þessi gamli íslenski siður væri hafinn til virðingar hjá félaginu á ný.
Settar verða inn myndir frá þorrablótinu í myndasafnið þegar leyst hefur verið úr tæknilegum örðugleikum.






