Kvenfélag Garðabæjar janúar 2010
Kæra félagskona.
Stjórnin sendir bestu nýárskveðjur til þín og fjölskyldu þinnar með þakklæti fyrir gott
samstarf á liðnu ári.
Aðalfundur
Aðalfundur Kvenfélags Garðabæjar verður haldinn að Garðaholti þriðjudaginn 2. febrúar
n.k.og hefst hann kl. 19:30 eða hálftíma fyrr en venjulega þar sem boðið verður upp á
súpu og brauð á fundinum. Hægt verður að kaupa sér léttvín með.
Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf. Kosið verður um fjórar konur í varastjórn
til eins árs og eina konu í aðalstjórn til tveggja ára.
Eftir mat tekur skemmtinefndin við en stjórnin skipar hana að þessu sinni. Í
kaffi/súpunefnd eru hverfi 10 og 11.
Þorrablót
Eins og fram hefur komið ætlum við að halda þorrablót að gömlum og góðum íslenskum
sið laugardaginn 23. janúar n.k. að Garðaholti. Þátttökukönnun var gerð á fyrstu tveimur
fundum félagsins sl. haust og skráðu konur sig þá á lista. Enn er þó nóg af sætum eftir.
Aðgöngumiðar verða seldir að Garðaholti mánudaginn 18. janúar milli kl. 17:00 og 19:00.
Raðað verður til borðs. Sjá nánar auglýsingu frá þorrablótsnefnd hér neðar á síðunni.
Heimsóknarvinir
Stjórn kvenfélagsins hefur verið beðin að vekja athygli félagskvenna sinna á brýnni þörf
fyrir heimsóknarvini til einmana fólks í Garðabæ. Opinn fundur um málefnið verður
haldinn á vegum Garðabæjardeildar Rauða krossins og kirkjunnar 28. janúar n.k. í
safnaðarheimili Vídalínskirkju og hefst hann kl. 17:30. Félagskonur sem áhuga hafa á
þessu góða málefni eru hvattar til að mæta og kynna sér það nánar.
Við hlökkum til samstarfsins á nýju ári og hvetjum félagskonur til að taka virkan þátt í
starfi kvenfélagsins.
Með kærri kveðju,
Stjórn Kvenfélags Garðabæjar
www.kvengb.is






