Laugardagur, 10. Mars 2012 17:59
Auður Guðmundsdóttir
92 konur mættu á fundinn sem var að þessu sinni vinkonufundur og gafst því félagskonum tækifæri á að bjóða vinkonu með á fundinn. Á fundinum afhenti Jóna Rún Gunnarsdóttir formaður fyrir hönd félagsins, Kolbrúnu Kjartansdóttur formanni Bergmáls, peningagjöf að upphæð 200.000. Bergmál er líknar- og vinafélag og er tilgangur félagsins að hlynna að krabbameinssjúkum, blindum, öldruðum og öðrum þeim er þurfa þykir. Að lokum var tískusýning frá Evuklæðum en Svava Grímsdóttir er hönnuður af kjólunum sem sýndir voru en einnig var sýndur fatnaður úr íslenskri ull sem Svava og Guðbjörg Rut Pálmadóttir hönnuður hafa þróað saman. Módelin skörtuðu fallegum skartgripum frá Gunnhildi Þórarinsdóttur en hún hannar undir merkinu DUNNA design. Nokkrar félagskonur sá um að sýna og vöktu þær mikla hrifningu fundarkvenna fyrir fagmannlega og líflega sýningu.
Síðast uppfært: Laugardagur, 10. Mars 2012 18:00
Föstudagur, 02. Mars 2012 21:05
Auður Guðmundsdóttir
Fimmtudagskvöldið 23. febrúar sl.var haldið spilakvöld fyrir eldri
borgara í Garðabæ í boði Kvenfélags Garðabæjar í félagsheimilinu
Garðaholti. Kvenfélagskonur tóku á móti spilagestum með Sherrý
en í kaffihléinu var boði upp á tertur og annað góðgæti. Mæting var
mjög góð og var spilað á 17 borðum. Í lokin afhenti formaður félagsins
Jóna Rún Gunnarsdóttir vegleg verðlaun en þau hlutu þau Berta Waagfjörð
og Árni Ólafsson.