Vorferð kvenfélags Garðabæjar verður farin laugardaginn 19 maí.
Lagt verður af stað frá Tónlistarskólanum kl 10.30, áætluð heimkoma kl 22.30
Við stefnum að skemmtilegum degi og búnar að panta frábært veður. Munið að taka með ykkur góða skapið.
Já stelpur nú eykst spennan. Fatnaður já já ?? byrjum bara á skóbúnaði. Hann þarf að vera góður til að ganga á og líka gott að vera í hlýjum utanyfirflíkum eða bara að sjá um morguninn hvernig viðrar.
Þetta verður dásamleg Óvissuferð.
Þær sem eiga eftir að skrá sig endilega gera það sem fyrst annars missið þið af frábærri og skemmtilegri ferð.
Skráning er hjá ferðarnefndinni til 10 maí.
Sigurbjörg Helena 690-7503
Þórunni Huldu 694-6620 heima 5650-6768
Svanhildi Gísladóttir 895-1569
Einnig verður hægt að skrá sig á vorfundinum mánudaginn 7. maí.
Kostnaður er 10.000 sem hægt er að leggja inná reikn 0546-14-402380 kt 220851-4869
Við lofum ykkur spennandi og fróðlegri ferð,
ferðanefndin 




